Hnyttinn titil hér

Thursday, March 30, 2006

 

Frá Raufarhöfn til Ungverjalands

Sé nafn Ungverjalands ritað á þýðskan móð er það Ungarn. Sem er, eins og glöggir lesendur sjá í hendi sér, stafarugl á nanfinu mínu.


Tuesday, March 28, 2006

 

Frá Boston til Raufarhafnar

,,Í sudda og kalsaveðri fór hrollur um Egil [Jónasson frá Húsavík] og hann orti undir laginu Blessuð sértu sveitin mín:

Farðu í rassgat, Raufarhöfn,
rotni fúli drullupollur.
Andskotinn á engin nöfn
yfir mörg þín forarsöfn,
þú ert versta víti jöfn,
viðmót þitt er kuldahrollur.
Farðu í rassgat, Raufarhöfn,
rotni fúli drullupollur."

Egill Jónasson: Egilsbók. Reykjavík 2001, bls. 100.

Um ,,óhefðbundin" skáld:

,,Það er hægt að þekkja frá
þá sem ekki ríma - sérðu.
Rytjuskegg er oftast á
andlitinu neðanverðu."

Sama heimild, bls. 78.
 

Frá Raufarhöfn til Boston




You Are Boston



Both modern and old school, you never forget your roots.

Well educated and a little snobby, you demand the best.

And quite frankly, you think you are the best.



Famous people from the Boston area: Conan O'Brien, Ben Affleck, New Kids on the Block

What American City Are You?

Monday, March 27, 2006

 

Pólitískt blogg?

Hvernig er það, var ekki fyrir allnokkru síðan skipaður starfshópur (eða eitthvað álíka) til að finna lausn á vanda Raufarhafnar?

Hefur hann verið leystur?

Hver var hann?
 

Veðurfregn

Veðrið í Tübingen í dag: 20,4° á selsíus og um 7 metrar á sekúndu (sem er mesti vindhraði sem ég hef séð mældann í þessu plátzi guðanna).

Veðrið í Reykjavík í dag: 0° og 10 metrar á sekúndu.

Sunday, March 26, 2006

 

Í tilefni vor-lóukomu.

Heílóar-vísa

Snemma lóan litla í
lopti bláu "dirrindí"
undir sólu síngur:
"lofið gjæzku gjafarans
"grænar eru sveítir lanz,
"fagur himinhríngur.

"Jeg á bú í berja-mó
"börnin smá, í kirð og ró,
"heim' í hreíðri bíða;
"mata jeg þau af móðurtriggð,
"maðkinn tíni þrátt um biggð,
"eða flugu fríða."

Lóan heím úr lopti flaug
(ljómaði sól um himinbaug,
blómi grær á grundu)
til að annast únga smá -
alla jetið hafði þá
hrafn firir hálfri stundu!

[Prentað án höfundarnafns (þó orkt af Jónasi Hallgrímssyni) í 2. árgangi Fjölnis árið 1836, í útlenzka og almenna flokknum bls. 28.]

Saturday, March 25, 2006

 

Einhver verður að segja þennan brandara.

Forði sér nú hver sem betur getur!

Lóan er komin að kvefa burt landann...

Thursday, March 23, 2006

 

Mislestur

Stundum getur mislestur sagt manni meira en réttur lestur. Áðan las ég einskis.is þar sem stóð enski.is á heimasíðu Morgunblaðsins og vísaði í einhverja sparklúðasíðu þar sem Íslendingar fylgjast spenntir með hrepparíg Englendinga.

Thursday, March 16, 2006

 

Óþol 16.03. 2006 - 3 Ísland nr. 1

Vesæla þjóð!

,,Málþingið fer að mestu fram á dönsku en starfsfólk Alþjóðahúss sér um túlkun."*

Að við, sem flest getum talað íslensku tiltölulega skammlaust, ráðum ekki við að kenna d ö n s k u, d ö n s k u! Af öllum málum heimsins dönsku, almennilega og almennt í grunnskólum þessa lands.


*Tölvupóstur sem ég fékk varðandi eitthvað málþing.

Tuesday, March 14, 2006

 

Til hamingju með daginn!

Í dag er 14. mars, eða á amríska vísu ritað 3.14. Glöggir lesendur þekkja þessa tölu einnig sem Pí.

Það er Pí-dagurinn!

Friday, March 10, 2006

 

Óþol 10.03. 2006 - 1 Fólk nr. 2.

Ég þoli það ekki þegar maður tuðar almennt yfir einhverju almennu í fari mannkyns og fólk heldur að þar með sé maður að undanskilja sjálfan sig; þ.e. að setja sig á háan hest.

Ég vil geta tuðað yfir öllu, þar með töldum sjálfum mér.*

___
* Ég fíla þágufalli.

Monday, March 06, 2006

 

Óþol

Nýr bréfalykill. Gildir frá og með deginum í dag, 6.3. 2006.

Óþol
1 - Fólk
2 - Skólinn
3 - Ísland
4 - Útlönd
5 - Bækur
6 - Fréttatengt efni
7-19 - Opin númer
20 - Annað

Því skoðast síðasta færsla sem:
Óþol 5.3. 2006 - 1 (Fólk) nr. 1.
Næsta færsla sem tengist fólki verður því númer:
Óþol DD.MM. ÁÁÁÁ - 1 (Fólk) nr. 2.

Vonandi verður þetta lesendum til hægðarauka og þæginda.

Sunday, March 05, 2006

 

Óþol 1 - Fólk

Ég þoli ekki fólk sem er jafn latt að blogga og ég.

Archives

April 2005   May 2005   June 2005   July 2005   August 2005   September 2005   October 2005   November 2005   December 2005   January 2006   February 2006   March 2006   April 2006   May 2006   June 2006   July 2006   August 2006   September 2006   October 2006   November 2006   December 2006   January 2007   February 2007   March 2007   April 2007   June 2007   July 2007   December 2007   February 2008   March 2008   April 2008   May 2008  

This page is powered by Blogger. Isn't yours?