„... og svo hann hann að skrifa, sem er meira en hægt er að segja um ýmsa þá sem þeysast um ritvöllinn þessa dagana.“
Héðan: http://bingi.blog.is/blog/bingi/entry/93222/
Vissulega er þetta bara aum innsláttarvilla, en samt! Þetta æpir á að á það sé bent.
Að brúka íslensku til dags daglegra nota er því glíkast að aka Ford-T módeli, ellegar sigla knerri, til vinnu.
Ég er upptekinn!
Aðdáendur mínir eru yfirþyrmandi, ég er farinn í prímadonnufýlu.
PS. Lífeyrislaunakona er ljótt orð. Pensjónisti, ellibelgur, ellismellur, gamalt skarn ofl. eru kúl hugtök.
„Katrín segir vinstri-græna hafa verið
ánægt með fjölda framboða og góða þátttöku í forvalinu.“
Tekið héðan:
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1239053 Áherslur mínar.
Ég vona að þetta sé mistak blaðamanns frekar en tilraun frambjóðandans til að gelda flokkinn.
Á gagnavarpsrás Austurvallarþings má finna stutt æviágrip fyrrverandi og núverandi þingmanna. Er það vel. Verra er aftur á móti þegar rásir þingmanna eru ekki uppfærðar sem skyldi.
Lítil getraun: Hvaða upplýsingar vantar á þessa rás:
http://www.althingi.is/cv.php4?nfaerslunr=38 ?