Hnyttinn titil hér

Monday, November 21, 2005

 

Snjókorn falla, á (næstum) allt og (næstum) alla.

Í morgun snjóaði bara heilan helling, skal ég segja ykkur. En bara við Nordring, þar sem ég bý (þ.e. í norðurhluta Tübingen). Ekki í skólahverfinu og miðbænum. Núna er rigning, þannig að ekki varði þessi sæla lengi.

Friday, November 18, 2005

 

Atburðir

Í morgun stóð ég og beið eftir strætó. Svo hrökk ég við, hvað hafði ég séð? Nei, það var líklega ekkert. Ha! Þarna var það aftur! Nei, eitthvað er ég að rugla. Hananú! Nú er ég viss, já! Húrra!

SNJÓR!!!

(Sem bráðnaði áður en hann snerti jörðina, og snjókoman varði bara í ca. hálftíma, en samt.)
 

Nöfn

Svona lítur nafnið mitt út, þegar ég blanda saman skemmtilegustu misskilningunum sem komið hafa:

Konrad/Günas Marcel Hindirksson.

Annars, íslensk nöfn. Í málfræðitíma í dag, sem við öll þrjú frá Íslandi sitjum, var kennarinn að skila yfirförnum verkefnum. Þegar hann kom að annarri íslensku stelpunni, sagði hann, eftir svolitla umhugsun:
,,Ich glaube dass das ist jemand ... von ... [sneri sér að Íslensku stelpunum] uh, Hegrhdis?"

Thursday, November 17, 2005

 

Snjór

Snjórinn virðist eitthvað ætla að láta bíða eftir sér, núna segir spáin að það eigi að snjóa á fimmtudaginn í næstu viku.

Skrambans svikarar!
 

Jól

Í dag, á leiðinni heim úr skólanum, sá ég jólaseríu á tré.

Fyrir nokkrum dögum var skraut hengt upp á milli ljósastaura niðrí bæ.
 

Tröll



Fræðatröll


Þú ert vanafastur, tilfinningaríkur innipúki.

Fræðatröllið er forvitið að eðlisfari og er köllun þess í lífinu að komast að sannleikanum. Fræðatröll má gjarnan finna í dimmum skúmaskotum bókasafna þar sem þau rykfalla og sussa á aðra gesti safnsins. Fræðatröllið klæðist gjarnan flaueli - nema þegar það er í tísku. Hringitónninn í síma þess er stefið úr þættinum Nýjasta tækni og vísindi, sem það grætur stöðugt að sé ekki lengur á dagskrá.



Hvaða tröll ert þú?

Ha, hmm? Jamm og já.

Wednesday, November 16, 2005

 

Hahahahahaha!

Ég fékk tölvupóst í gær, sem hefst svona:

,,Sehr geehrter Herr Hindirksson,"

Haha!

Monday, November 14, 2005

 

Hamingja, hamingja! Gleði, gleði!

Veðurspáin segir snjór á fimmtudag og föstudag, slydda á laugardag!

Húrra!
 

Hið fullkomna skriftól

Mikið langar mig í þennan blýant.
https://www.artundgrafik.de/cgi-bin/art?HTML=show/standard_shop.htm&VS_TAB_NAME=W_ZEICH_DESIGN&VS_PARENT_ID=10844439728278&VS_INDEX=1084456551152&VS_PROD_POS=6&ID=0aKCp8xbo5EWnOvs.0.1131978771

Sunday, November 13, 2005

 

Siggi!

Ef þú berð nafnið Sigfried og er Þjóðverji, þá eru allar líkur á því að þínir nánustu kalli þig Sigga.

Saturday, November 12, 2005

 

Sóldátar lestaðir

Í gær fór ég til Stóðgerðis (Stuttgart) og lestin var full af hermönnum á leið í helgarfrí. Meiraðseigja her-gellur líka. Það er eitthvað hættulegt við kvenmann sem gegnir kallinu Frau Gefreiter.

Hér sumsé þurfa allir að gegna herþjónustu eða samfélagsþjónustu eitt ár.

Monday, November 07, 2005

 

Orð

Þegar við tölum um vini okkar í Westrinu segjum við gjarnan kanar. Hér í Þýskalandi heita þeir (já, femínístar, amríkani er kallkynsorð = kallkyn þegar fornafni er beitt) Amis. Landið þeirra heitir Amiland.

Tvípunktur svigi lokast!!!! Þokkalea mar.
 

Deutschland sucht ein Superstar!

Svo heitir ædólið hér í Germaníu. Jamm og já. Menningin blífur.
 

Kómískt teutscht sprok.

Um daginn sá ég brot af ,,Kommissar Rex", sem íslenskir sjónvarpsáhorfendur muna kannski eftir. Í fyrsta lagi var voða gaman að sjá að ég skil slatta í austurrískunni, en hvað fólkið sagði var aftur enn skemmtilegra. Sjá:

Sie haben im Internet geblättet.

Eða: Þér hafið blaðað í internetinu.

Friday, November 04, 2005

 

Hvad er málid?

Á thessum midli hef ég ádur minnst á vafasamar myndbirtingar med fréttum af sjálfstaedisflokksvafstri. Nenni ekki ad grafa link upp. Sjáid svo thessa frétt, dýrdarljómann sem skín af VALHÖLL og frásagnir af thví ad fólk hafi ,,rudst inn," thetta er eins og ad lesa helgisögu í handriti med gylltri mynd. Svei mér thá.

Ég er viss um ad myndin sé fótósjoppud.

Archives

April 2005   May 2005   June 2005   July 2005   August 2005   September 2005   October 2005   November 2005   December 2005   January 2006   February 2006   March 2006   April 2006   May 2006   June 2006   July 2006   August 2006   September 2006   October 2006   November 2006   December 2006   January 2007   February 2007   March 2007   April 2007   June 2007   July 2007   December 2007   February 2008   March 2008   April 2008   May 2008  

This page is powered by Blogger. Isn't yours?