Hnyttinn titil hér

Sunday, February 25, 2007

 

Kronprins Frederik har et höjt mast...

Sbr. nýlegar fréttir (sjá hér: http://mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1255475) eru háu möstrin enn við lýði, og miðað við viðbrögð Svía, má brúka þau til að brjóta heila og hjálm.

Thursday, February 08, 2007

 

Vores Dronnings Sundhed

Nú hefur höfuð Stór-Danska Konungsveldisins hlotið nýtt hné! Hurra, hurra, hurra, hurra!

Því legg ég til textabreytingu, í stað:
Kong Kristian stod ved hojen mast
kemur:
Dronning Margrethe stod ved nytt knæ!

Monday, February 05, 2007

 

Óheillavænleg prófílun minnar persónu

Fyrir nokkrum misserum síðan keypti ég bók hjá Amazon í Stóra-Bretlandi. Sú heitir: The Executioner Always Chops Twice: Ghastly Blunders on the Scaffold, í hverri, á gamansaman hátt, er sagt frá mistökum við aftökur, aðallega í Stóra-Bretlandi, en einnig víðar. Ogsvo er sagt frá helstu aðferðum hins opinbera við að taka líf þegna sinna og borgara.

Nú í dag fæ ég gagnavarpsviðtækisbréfpellu (e. E-mail) frá Amazon í Stóra-Bretlandi, hvers efni var: Get "Sadistic Killers: Profiles of Pathological Predators" by Carol Anne Davis for £7.99

Ekki mjög lystaukandi, eða hvað? Hvað halda þessir menn um mig, ef þeir finna sig knúna til að láta mig vita af hverri einustu ógeðsbók sem kemur út, bara vegna vægs aftökublætis míns?

P.s.: Amazon = óþægindasvæði?

Archives

April 2005   May 2005   June 2005   July 2005   August 2005   September 2005   October 2005   November 2005   December 2005   January 2006   February 2006   March 2006   April 2006   May 2006   June 2006   July 2006   August 2006   September 2006   October 2006   November 2006   December 2006   January 2007   February 2007   March 2007   April 2007   June 2007   July 2007   December 2007   February 2008   March 2008   April 2008   May 2008  

This page is powered by Blogger. Isn't yours?