Mér er hræðilega þágufallssjúkum. Fyrr í degi sá mér setningunni: ,,Endurræsa tölvuna." Samstundis hugsaði mér: ,,Er ekki réttara að segja: Endurræsa tölvunni." Mér er veikum!
,,Kijr 2 vt lyfadar og tannlausar"
Heimildaskrá
Óprentaðar heimildir:
ÞÍ, Rtk. III, 1. Kvikfénaðarskýrslur 1703.
Að erfiða í þessu dag og nótt, ár frá ári, og geta engu sjálfur útkomið in lucem publicam sem í nokkru nýtt kynni vera, eyðileggst síðan eða verður plagiariis að bráð, þykir mér álitsvert.
Grunnavíkur-Jón Ólafsson.
Þessi tunga [þ.e. norræna] er hvergi varðveitt á Norðurlöndum hreinni heldur en á Íslandi, þeirri margfrægu dönsku eyju.
dixit Ole Worm.
Sókrates - Plató - Aristóteles
Torfæus - AM - Grunnavíkur-Jón
Ef allt er texti, er textinn þá ekki bara einn? Sé svo, vaknar spurningin: er verið að skrifa bókina jafnóðum eða er tilveran bara lestur á gamalli skræðu?
,,...[T]he modern census ... was invented in the Scandinavian countries in the mid-eighteenth century."(1)
Þetta er vitanlega al-rangt. Fyrsta manntalið yfir heila þjóð sem varðveitt er er frá 1703, og er íslenskt, ekki skandinavískt. Fyrir utan nú öll þau sem eru til í brotum frá t.d. Þýskalandi frá 17. öld og svo var eitt franskt tekið í einhverri amerískri nýlendu á 17. öld, en það er víst glatað, að hluta eða í heild. Svo er náttúrlulega jólaguðspjallið, þó það sé kannski ekki móðins.
(1) Manntöl að nútíðarhætti voru uppfundin í skandinavíu um miðja átjándu öld. Tosh, John:
The Pursuit of History Þriðja úgáfa, endurskoðuð. London 2002, bls. 249