Vitið þið afhverju Árni Johnsen fer fram í suðurkjördæmi?
Vegna alls fylgisins á Litla-Hrauni!
Eins og kunnugt er hafa íslenskir fjölmiðlar einstaka ánægju af því að flytja fréttir af sjálfum sér - sk. metafréttir. Samt er eins og ekki sé sama Jón og sr. Jón í þessu efni. Nú er fyrirsáta einhverrar hundómerkilegrar útvarpssjónvarpsstöðvar sagt upp, og allar fréttaveitur fyllast umsvifalaust af tíðindum af stórviðburðinum. En þegar Ómar Ragnarsson varpar hlutleysiskrossinum og ýjar jafnvel að þverpólítísku sérframboði um umhverfismál, kemur það seint og um síðir og í mýflugumynd í fjölmiðlana.
„Det var en Skat af alle
Ildsteder i By og paa Land: Skorstene, Kakkelovne, Bagerovne og andre Ovne, Bryggerkedler, Esser etc. [...]“
Nielsen, Helge og Victor Thalbitzer:
Skatter og Skatteforvaltning i ældre tider. Kjøbenhavn 1948 (ljósprent frá 1976). Bls. 68.
Ég les (nánast) aldrei Moggann á pappír, en oft í gagnavarpinu.
Ég les (nánast) aldrei Fréttablaðrið í gagnavarpinu, en oft á pappír.
Stórfrétt/skúbb: í gær fór Gunnar á hestbak, í fyrsta skipti í tæp 20 ár. Og það var ekki teymt undir mér í þetta skipti.
(Svo kom ég heim og það var reykt folaldakjöt í matinn: ég og hesturinn, við erum eitt.)