Hnyttinn titil hér

Wednesday, May 03, 2006

 

Próf

Í hvert sinn sem prófatíð fer í hönd tuða ég ákaft yfir tilgangsleysi og vanköntum tengdum áðurnefndum prófum.1 Þá eru tveir (2) möguleikar.
Hinn fyrri er sá að hefðbundið prófafyrirkomulag er sannarlega gallað og þarfnast lagfæringar ekki seinna en strax (ég býð mig fram í nefndina).
Seinni möguleikinn er síður fýsilegur. Hann er sá að prófin eru fín en tregðan liggi hjá mér.
Ég er á þeirri skoðun á að seinni skýringin sé röng, því ég á oftast (sjö(7)-níu(9)-þrettán(13)) gott með að fá einkunnir sem ég er sæmilega sáttur með.

Því segi ég: Niður með prófin! Upp með eitthvað annað sem ég er ekki búinn að ákveða hvað á að vera!
____________
1 Nema í Þýskalandi, þar voru prófin æði.2
2 Enda tók ég engin próf í Þýskalandi.3
3 Nema í þýskukúrsunum, en það telst ekki með.
Comments:
Já, ég mun sannarlega verja 24 klukkustundum á degi hverjum í að síma í þetta mikilvæga númer!

Hafðu kærar þakkir fyrir upplýsingarnar, framtíð mín er nú þegar mun betri!
 
Hvað varð um gömlu góðu penis enlargment spamin?

Eru allir komnir með stór tippi?
 
Það koma engin vúlgar spömm á mína síðu! Hér koma bara akademísk spömm.

Varstu búinn að kynna þér möguleikann á því að fá meistaragráðu án fyrirhafnar? Ég hef hér nokkra bæklinga...
 
Post a Comment

<< Home

Archives

April 2005   May 2005   June 2005   July 2005   August 2005   September 2005   October 2005   November 2005   December 2005   January 2006   February 2006   March 2006   April 2006   May 2006   June 2006   July 2006   August 2006   September 2006   October 2006   November 2006   December 2006   January 2007   February 2007   March 2007   April 2007   June 2007   July 2007   December 2007   February 2008   March 2008   April 2008   May 2008  

This page is powered by Blogger. Isn't yours?