Í hvert sinn sem prófatíð fer í hönd tuða ég ákaft yfir tilgangsleysi og vanköntum tengdum áðurnefndum prófum.
1 Þá eru tveir (2) möguleikar.
Hinn fyrri er sá að hefðbundið prófafyrirkomulag er sannarlega gallað og þarfnast lagfæringar ekki seinna en strax (ég býð mig fram í nefndina).
Seinni möguleikinn er síður fýsilegur. Hann er sá að prófin eru fín en tregðan liggi hjá mér.
Ég er á þeirri skoðun á að seinni skýringin sé röng, því ég á oftast (sjö(7)-níu(9)-þrettán(13)) gott með að fá einkunnir sem ég er sæmilega sáttur með.
Því segi ég: Niður með prófin! Upp með eitthvað annað sem ég er ekki búinn að ákveða hvað á að vera!
____________
1 Nema í Þýskalandi, þar voru prófin
æði.
22 Enda tók ég engin próf í Þýskalandi.
33 Nema í þýskukúrsunum, en það telst ekki með.